Formkaka ala Kisa

Ég fékk grunninn að þessari formköku á síðunni hjá henni Kisu - takk fyrir það.

2 egg
100 gr létt-jógúrt (eða létt-súrmjólk)
10 gr létt-majo
75 gr cous-cous (soðið)
30 gr hveiti
7 gr lyftiduft
1 pera eða epli

1,5 - 2 tsk sætuefni
1/3 tsk vanilluessens

Sjóðið cous-cousið. Rífið peruna eða eplið með rifjárni. Blandið öllum hráefnunum saman og setjið í silikonform (eða bara venjulegt bökunarform... en það gæti samt fests við það þar sem það er ekki mikil fita í þessari uppskrift). Bakist við 180°C í 50-55 mín.

DDV-merkingar: 2 krossar í egg, 1 kross í mjólk, 1 kross í fitu, 2 ávextir (cous-cous kemur í staðinn fyrir einn ávöxt) og 6 krossar í extra.


Ofaná kökuna setti ég svo æðislegt súkkulaðikrem.

10 gr Létta
10 gr 100% kakó
smá vatn

sætuefni

5 dropar vanilluessens
62 gr sýrður rjómi (10%)

Best að byrja á því að hræra saman smjör (brætt), kakó og vatn. Setja svo sýrða útí og hræra það allt vel saman. Bragðbæta svo með sætuefni og essens.

DDV-merkingar: 2 krossar í fitu, 2 krossar í extra og 1 kross í mjólk.


Athugið að þar sem að það eru 2 egg í þessari uppskrift er þessi kaka í hádegismat og með henni borðar maður 300 gr grænmeti og 30 gr brauð. Tilvalið að borða það bara fyrst og svo kökuna í eftirrétt. Kakan er samt MJÖG saðsöm (er líka um 450 gr með kreminu) og það væri ef til vill sniðugt að deila henni jafnvel niður á tvo daga.

Sandkaka

1 egg
65 gr sýrður rjómi (10%)
75 gr soðið couscous
30 gr hveiti
30 gr undanrennuduft
3 tsk lyftiduft
cirka 1 pípa vanilluessens
15 gr létt-majo
safi úr ½ sítrónu
sætuefni

Hrærið allt saman og skellið í silíkonmót. Bakið á 180°C í um 45 mínútur með álpappír yfir kökunni síðustu 20 mínúturnar til hún verði ekki of dökk.
Grunnurinn af þessari köku kemur úr bók númer 5 en eins og alltaf þá hef ég breytt henni smá. Athugið að þar sem að það er egg í uppskriftinni þarf annað hvort að borða hana í morgunmat eða sem part af hádegismat.

DDV-merkingar: 1 kross í egg, 1 kross í mjólk, 1 ávöxtur í staðinn fyrir couscous-ið, 6 krossar í extra og 1 ½ kross í fita.

Súkkulaðimöffins

1 egg
60 ml undanrenna
20 gr undanrennuduft
5 gr 100% kakó
4 gr lyftiduft
1 tsk sætuefni
½ tsk vanilluessens
½ tsk kókosessens
¼ tsk rjómaessens
15 gr létt-majo

Allt sett í skál og hrært. Sett í 6 stk möffinsform og bakað í 15-20 mín við 180°C.
Athugið að þar sem að það er egg í uppskriftinni þarf annað hvort að borða þessar möffins í morgunmat eða sem part af hádegismat.

DDV-merkingar: 1 kross í egg, 1 kross í extra, 1 ½ kross í fita og ½ kross í mjólk.

Morgunverðarvöfflur

1 dl létt jógúrt (hrein)
1 egg
25 gr undanrennuduft
25 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
10 gr Létta
sætuefni
vanilluessens
salt


Blanda öllu saman og steikja í vöfflujárni. Borða svo með 15 gr af sykurlausri sultu, ávöxtum, sýrðum rjóma eða bara hverju sem þið viljið. Verða um 4 vöfflur.
Þessi uppskrift er hugsuð sem morgunverður og þarf því að borða 30 gr af brauði með og 1 ávöxt.
DDV-merkingar: 1 kross í mjólk, 2 krossar í fita, 1 kross í egg og 5 krossar í extra.

Gulrótarkaka

150 gr rifin gulrót
40 gr undanrennuduft
30 gr hveiti
5 gr lyftiduft
smá vanilluessens (cirka 8-10 dropar)
5 gr kanill
sætuefni

Öllu blandað saman og sett í sílikonform og bakað í ofni á 180°C í ca. 50 mín. Það borgar sig samt að fylgjast með kökunni.

Ofan á kökuna má svo setja smjörkrem ef maður vill en ég sleppti því og fékk mér í staðinn vanillurjóma (sýrður rjómi, sætuefni og vanilluessens).

30 g klípa
smá vanilluessens
sætuefni

sítrónusafi

Hrært saman og smurt á kökuna ásamt t.d. 15 gr af aprikósumarmelaði (sykurlausu of course).

DDV-merkingar: Kakan gefur 6 krossa í extra en kremið gefur 3 krossa í fitu.

Grunnurinn af þessari uppskrift var aftan á kassa með DDV-undanrennudufti og svo gerði ég smá breytingar.

Pönnukökur


2 ½ dl undanrenna
2 egg
60 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
20 gr undanrennuduft
½ tsk salt
10 gr olía
kardemommur eða vanilla
sætuefni

Blanda öllu saman og steikja á pönnukökupönnu. Borðist með 15 gr sykurlausri sultu, sýrðum rjóma með smá sætuefni, ávöxtum eða bara hverju sem maður vill.
Athugið samt að þar sem það eru 2 egg í uppskriftinni verður að borða annað hvort allan skammtinn í hádeginu eða skipta honum til helminga og borða sitthvorn morguninn.

DDV-merkingar: 2 krossar í egg, 15 krossar í extra, 2 krossar í fitu og 2 krossar í mjólk.